Þriðjigé

Warning: Piggies may be involved in resulting insanity

05.09.2007 20:45:21 / Indriði

Alvöru síða fyrir alvöru fólk!

4.T er málið. Tjekk thatt sjitt át! www.blog.central.is/4t-mr

» 13 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 09:15:32 / Indriði

DANAVELDIÐ!!!!

Bræður og systur, of lengi höfum við verið án hjálpar í okkar íslenska samfélagi. Þurfum við að sætta okkur við okur bankanna, alíslenskt kvótakerfi, Ásgeir Magnússon og Gvend úr Byrginu. Ég hef fengið mig full saddan af þessu fíflalátum og lýsi hér með yfir einskærri stefnu, já stefnu, að frelsi. Kæru Íslendingar, gerumst þegnar dönsku krúnunar aftur og virðum dönsku krónuna aftur. Tökum Danske Bank alvarlega um okkar óstöðuga hagkerfi. Við munum alltaf líða vel og við munum segja aftur PÖLSER en ekki pylsur.

Nah, bara djók. Ég er á móti öllu þessu fyrir ofan. EN nú að raunverulegri skrifum.

Ég vaknaði klukkan 8 á íslenskum tíma. Fórum við á flugvöllin, ég, sædís og Björg litla (systur dóttir Sædísar), klukkan hálf 11. Töfðumst við því fluginu seinkaði um 35 mín og fórum því 13:50. Ég vissi að þetta hefði áhrif á tengiflugi okkar til Aalborg. Okkur var líka sagt að við ættum að sækja töskurnar okkar og fara með þær í hitt flugið. Lenti flugvélin 18:55 og þá hófust hlaup. Við biðum eftir töskum sem komu aldrei og þegar við hringdum í tengdó þá sagði hún okkur að hlaupa. Við komust að innanlands terminalinu á slaginu 20:10 en akkúrat hafði flugvélin farið. Upphófst smá panik hjá sumum en sumir héldu stáltaugunum og buguðust ei. Öðru flugi var reddað og við flugum með síðasta fluginu til Aalborg á Jótlandi þar sem mágkona mín tók á móti oss. Svo núna í morgun kom farangurinn aftur. Hér er 25 stiga hiti og MJÖG rakt. En ég verð hér til 19.ágúst.

Og nú er ég farinn að hlakka til skólans. Þar að auki komst hún Sædís mín í MR og það einfaldar aðeins hlutina. En ég þarf að drífa mig í sturtu. Það er farið að líða yfir fólk.

Cya


» 22 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 21:10:18 / Davíð Berg

kæru bekkjarfélagar....................

ég missti af síðasta ofur-massa six pack hittingi ......hjá nafnus....svo er ekki málið að halda annan í þessa áttina, svona aðeins til þess að stilla saman strengina fyrir komandi skólaár... einhver sjálfboðarliði sem býður sig fram....ég væri til í trampólín....mega-langt síðan ég fór síðast á trampólín...úff

 

annars peace out ...   P.S.:fjórhjól og keyra bílnum hans nafna í gryfju er málið(Y)

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 17:06:30 / Tinna Lind

Massahittingur

Ekkert go-lart lengur á Íslandi svo það fellur niður :S en í staðinn verður MASSAHITTINGUR á morgun, miðvikudag kl 8 :D ALLIR að mæta! Heitur pottur, Snúsnú og Trampolín Það verður svo gaman að sjá ykkur öll aftur :D búin að sakna ykkar í sumar, þegar 3-G kemur saman, þar er gaman ;D ...látið endilega vita í skoðanir að þið komist ;)

» 30 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 17:55:06 / Davíð Þór

Race babys

Jæja kútarnir mínir. Er ekki kominn tími til að losa sig úr viðjum vinnuþunglyndis og hámarkshraða. Já elskunar mínar planið er að við hittumst og skellum okkur í gokart 8). Við myndum skella okkur í kappakstur 8) á þriðjudaginn 10 eða miðvikudaginn 11 eftir kl 4 síðan eftir það gætum við fengið okkur að éta eikkersstaðar. Þeir sem vilja koma tjái sig um það hér. Ef einhver treystir sér ekki að keyra auman kjúklingabíl þá er henni velkomið að koma með og horfa á. Ég vona að sem flestir komi þeir fleiri sem tapa og klessa á því betra :klikk:. Ég get síðan séð um transportationið fyrir mig og 4 aðra. Sollz og Dozz geta örgla plöggað einhverjum far.

 


» 25 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 16:46:57 / Ívar

Niðurröðun í bekki er lokið

Nú getiði kíkt á Innu og séð í hvaða bekk þið eruð. Samt ekki hægt að sjá lista yfir alla í bekknum, bara hvaða bekk þið eruð í. Endilega kíkjið og skrifið í skoðanir, kannski verðum við bara öll aftur saman í bekk.:P

Ég er í 4. Q. Hverjir eru alveg ótrúlega heppnir að lenda með mér í bekk?8)


» 21 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 21:00:45 / Davíð Þór

0,5 pilot in cummand

Ég vaknaði kl 6 um morguninn og burstaði tennurnar. Síðan keyrði ég út á esso og fékk mér subway í morgunmat. Ég kom niðrí flugskóla gerði allt tilbúið fyrir flugið og tankaði vélina. Síðan var brunað í loftið með prófdómara og ray-baininn. Við héldum út í suðursvæði og fórum í æfingarnar. Allt gekk feykilega vel nema þegar ég átti að finna lendingarstað þegar mótormissir var settur á svið ég yfirskaut :( En það gekk betur í annað sinn. Svo var hgaldið til lendinga á reykjavíkurflugvelli. Ég tók 3 lendingar og ég gjörsamlega smurði vélinni á brautina. Seinna um daginn fór ég aftur niður á flugvöll. Fór í 3 lendingar með próf dómaranum og eftir þær stökk hann út á alpha og ég brunaði aleinn í loftið með ray-baininn. Svaka munur þegar maður er ekki með feitan kennara við hliðiná maður bara skýst upp. Fyrsta lendingin gekk eins og í sögu og hringurinn fyrir hina en þegar ég var á lokastefnu var ég beðinn um að fullstoppa í staðinn fyrir að snerta ég stressaðist smá upp við þetta og lenti soldið seint svo ég þurfti að keyra á brautarendann aftur og taka á loft en í því flugtaki var mér sagt að beygja til vinstri sem ég var þegar byrjaður á því að ég sá að þarna var önnur flugvél sem kom beint á móti mér. Eitthvað fór úrskeiðis hjá þeim en ég og hin vélin beygðum báðar frá hvor annari en vorum samt skuggalega nálægt. Næstumþví eins og þegar gaurarnir í pearl harbour fara að leika sér á því að beygja þannig að vængirnir séu samsíða með aðiens 20 sm millibili. En svo fór ég inn á rétta trackið aftur og lenti ég vélinni eins og fjöður. Soldið gaman að lenda í flugumferðaratviki í fyrsta sólóinu það er soldið rare en flugumferðaratvik er næsta fyrir neðan flugslys.

Annars segi ég allt fínt. Ég er allttaf að vinna í þessu drauma jobbi með ray-baininn. Frítt að éta, frítt aðp drekka, nóg að gera og leti þess á milli. Nóg af launum , nóg af skemmtilegu og flottu fólki. og pólska flugfreyjan er flott ég trúði því varla að hún væri pólsk. Fékk reyndar yfir mig notað klósettvatn í dag fkn Falconar og Hawkerar en ég ég náði bata eftir þrjú korter í sturtu. Annars bara greðilega þjóðhátíð (yfirvinna 2000 kall á tímann sweeeet)

 

Take care and good bye. Og ef einhverjum vantar flugfarfar á þjóðhátíð......... 


» 24 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 23:06:42 / Halldór

Life After MR

Þar sem að ég er mjög góðhjartaður þá ætla ég að gera Sólveigu greiða og blogga svo myndin af henni verði ekki það fyrsta sem sést.

Eftir MR eyddi ég dögum mínum liggjandi í leti, lesandi bók, glápandi á sjónvarp og þess háttar skemmtilegheit. Allt var í fína þar til 4. júní kom. Vinnan byrjar og maður vaknar aftur snemma á morgnana eins og í skóla. Manni er sagt að gera hitt og þetta líkt og í skóla, nema hvað að hjá mér kýs ég skólann núna. Erfið vinna, bakið að drepast, langur vinnudagur, misskemmtilegir vinnufélagar og læti á meðan í skólanum fékk maður að sitja og skemmta sér allann daginn, sem var satt að segja frekar stuttur þegar maður pælir í því, með félögunum. En allt þetta fellur í skugga þess frábæra atburðar að í dag þá... (trommusláttur) FÉKK ÉG BÍLPRÓFIÐ MITT:D Vildi bara deila þessu með ykkur að ég var 3. í bekknum að fá það og mun kannski kíkja reglulega í heimsókn í bæinn til ykkar allra (nema Indriða, kannski Stubbur reddi manni þangað). En annars þá er þetta allt saman. Hvet alla eindregið að segja frá lífi sínu eftir fyrsta árið í MR, áhugaverð lesning áreiðanlega.


» 21 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 17:35:48 / Ragnhidur

Myndir!!

Hæhæjj. Æðislegt kvöld hjá Sólveigu um daginn ;D Takk fyrir mig ;) Tók nokkrar myndir og setti inná síðuna.

Flott þetta ;) haha

 

Hanna dugleg að elda

Ungfrú og herra 3.G ;D

Til hamingju líka með að vera búin með skólann! Skemmtiði ykkur geðveikt vel í sumar og svo sjáumst við í haust :*

Og Guðný, skemmtu þér brjálæðislega vel útí Bandaríkjunum og svo sjáumst við eftr það ;) 

 Og svo nokkrar fyrir Magga, hehe:

 

  

 Bæbæjj :***

Ragnhildur


» 14 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 21:18:03 / Indriði

Takk fyrir

Jæja krakkar, þá er þessari rússíbanareið á fyrsta ári okkar í framhaldskóla að nálgast endann sinn. Hef ég lært meira á þessu eina ári en ég hef nokkurn sinni gert á allri minni skólagöngu í grunnó. Á ég líka fleiri vini en ég átti á Hólmavík og loksins eignaðist ég góðar vinkonur í MR, ekki einhverjar tíkur sem voru leiðinlegar eða töluðu aldrei við mig. Leið mér eins og litlu barni í blómaveröld meðal vina hérna í MR og margt sem ég hef upplifað í vetur sem hefur breytt lífi mínu.

 

Ekki gleymum við nú því á fyrsta skóladeginum þegar okkur var skipað inn í stofur og ég hélt að ég væri í vitlausri stofu. Svo má ekki gleyma Tolleringunum þegar við vorum niðurlægð fyrir framan eldri nemendur því þeim þyrsti hefndar vegna tolleringa síðustu ára. Það er ein af þessum óborganlegu minningum. Ekki má gleyma öllu því skyri sem Dabbi gleypti, sakleysið frá Magga litla, sólargeislanum hana Söndru, hláturinn í Tinnu, brosið hans Sibba og margt annað sem væri of mikið til að telja upp í einu litlu bloggi. Eignuðust við eina Celebrity í bekknum og ekki var það nú slæmt heldur þegar söngfuglinn hún Guðbjörg gerði nafn sitt ódauðlegt þegar hún söng kvöld eftir kvöld og hélt í með náminu. Sýnir það mikinn styrk og duggnað á því sviði. Partýin góð (kannski sum misjöfn og fámenn) og djammið undursamlegt. Lærði ég ýmislegt nýtt og gaman um tónlist og hvernig Drum&Bass bönd geta verið ágæt þ.e.a.s. ef þau eru live.

 

Persónulega leið mér vel í vetur. Frá því er að segja að ég eignaðist kærustu 17.nóvember, ég byrjaði í hjómsveit fyrr í þeim mánuði, spiluðum á giggum og höfum fengið geðveikt tækifæri á að spila lag á disk. Ég má monta mig því ekki gefst það tækifæri alltaf. Er ég að vinna við að gera upp hús á Súðavík í sumar og því verð ég á Ísafirði allt sumarið. Svo er stefnt að fara til Danmerkur í sumar og djamma þar.

 

En eins og ég sagði fyrr þá var þetta búinn að vera æðislegur vetur og ég vona að ég lendi með ykkur flestum í bekk að sumri liðnu.

 

Indriði.;)


» 43 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 14:52:02 / Sandra

Myndir eina ferðina enn

Hérna koma myndirnar sem að voru teknar hjá Sólveigu, takk fyrir mig ;)

http://new.photos.yahoo.com/sandra_seidenfaden/album/576460762402518084


» 11 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 15:55:44 / Sólveig

!!

Heeey sýnist á öllu að tacco með kjúkling sé málið .. það er of mikið mál að steikja kjúkling og hakk fyrir alla þannig höfum bara kjúkling .. er það ekki bara í góðu ?

 Ég spurði mömmu hvað hún myndi halda að svona kostaði á mann og hún sagði að þetta væri varla meira en 800 með grænmeti, drykkjum, kjúkling og sósu .. en eigum við samt ekki bara að segja 1000 kr. á mann og við borgum ykkur svo afganginn, bara svo við séum pottþétt með nóg og þa getum við lika bara keypt eitthvað nasl fyrir kvöldið og svona :D .. þannig bara;

Allir sem ætla að mæta koma með 1000 kr. á morgun eða hinn í prófið .. MUNAAAA :D

við verslum svo nottla bara fyrir jafnmarga og eru búnir að borga, þannig þið verðið að muna þetta :D

vonandi eru allir sáttir með þetta og ef það er eitthvað þá bara skrifið þið það í skoðanir .. eina sem á eftir að finna út er kl. hvað þetta ætti að byrja, þið megið bara algjörlega ráða því mér er alveg sama ;)

later, -sólveig :D

p.s. lesa bloggið hérna fyrir neðan ef þið ætlið í busaferðina ;)


» 23 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 00:55:07 / Ragnhidur

Rútan

Hæ allir! Sorrý Sólveig að ég bloggi svona yfir þig, flott blogg hjá þér ;) En alla vega, þeir sem taka rútuna í ferðalagið: Smá breyting, rútan átti að kosta 1500 krónur báðar leiðir en hún kostar víst 2500 báðar leiðir. Vonandi að þetta er allt í lagi. Og já, ég þarf helst að fá pening fyrir rútunni á mánudaginn eða þriðjudaginn. Annars segi ég bara gangi ykkur vel í efnafræðinni og allir að lesa bloggið hennar Sólveigar fyrir neðan!!! :D

Ragnhildur  


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 12:36:55 / Sólveig

:)

já sæl :D heyriði við verðum eiginlega að fara skipuleggja þetta dæmi á þriðjudaginn aðeins .. leikurinn sem ég átti að spila þennan dag var frestað þannig ég get haldið þetta ;) flestir ættu alveg að vita hvar ég bý, hélt morgunverðarpartýið, en þetta heitir allavega Viðarrimi 56 og glæsilegt kort má finna í einhverjum af bloggunum hérna .. 

Þurfum að ákveða hvað eigi að borða, klukkan hvað þetta verður, hverjir ætla að versla, hvert ca. verð er og eitthvað þannig ..

Þarna með matinn, það sem mér dettur aðallega í hug er:

  • svona pönnukökudæmi eins og guðbjörg talaði um, man ekki hvað það heitir
  • eitthvað kjöt, væri samt kannski solldið vesen að elda svona mikið kjöt fyrir alla
  • gætum nottla alltaf grillað, á fínt grill hérna, ef þið viljið það þá gætum við nottla haft kjöt, hamborgara eða bara pulsur
  • eða einhverjar aðrar hugmyndir?

endilega segið í skoðanir hvað þið viljið helst, meirihlutinn ræður svo bara ;)

Já svo er spurning klukkan þið viljið hafa þetta..? ef við ætlum að elda saman verðum við nottla að gera ráð fyrir að hafa tíma fyrir það og svo verður líka að vera tími fyrir eitthvað chill á eftir.. :D

Svo þurfum við líka einhverja sjálfboðsliða, svona 3-4, til að versla í matinn.. ég skal vera ein af þeim því ég get nottla keyrt svo bara matinn hingað beint heim, bara pæla hverjir nenna með mér? :)

Og já þurfum eiginlega að finna út eitthvað verð sem fyrst og láta sem flesta reyna að borga mér eða einhverjum sem fer að versla á mánudag eða þriðjudag svo við getum nú notað peninginn við matarkaupin.. ef einhver veit mikið um verð á matvörum þá má hann endilega reyna reikna út ca. verð, bara muna að reikna með snakk og svona smátterí fyrir kvöldið :P

Svo var ég líka að pæla þarna með kosningarnar sem við vorum með um daginn, tinna og sandra, voruði búnar að kaupa einhver verðlaun? ef já þurfum við þá ekki að borga ykkur eitthvað? og ef ekki eigum við þá ekki að reyna bæta smá í matarpeninginn og einhverjir gætu reynt að finna eitthvað sniðugt, sem tengist titlinum, í verðlaun ..

 Allir að skrifa sína skoðun ! :D .. held þetta sé annars bara allt komið! gangi ykkur vel í próflestrinum um helgina ;*

Sólveig 8)


» 16 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 21:21:00 / Hanna Lilja

Dönskuprófið

Eins og þið hafið væntanlega tekið eftir voru nokkrar glósur af bls. 28 á prófinu í morgun. Ég sendi Ebbu dönskukennara tölvupóst áðan fyrir hönd 3.G þar sem ég lýsti megnri óánægju okkar yfir þessu en svo er bara að sjá hvað gerist.

Skemmtið ykkur yfir efnafræðinni,

Hanna Lilja


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Dagsetning
9. febrúar 2012
The Others
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 5 september